Míla á neyðarstigi vegna eldgoss í Sundhnjúkagígaröð - Nánar
Beint í efni

Reykjanes Míla á neyðarstigi vegna eldgoss í Sundhnjúkagígaröð

1. apríl 2025

Míla hefur hækkað viðbúnaðarstig sitt upp á Neyðarstig. Þetta er gert til að fylgja viðbúnaðarstigi Almannavarna og vegna eldgos sem hafið er í Sundhnjúkagígaröð. Fjarskipti eru í hefðbundnum rekstri á svæðinu eins og stendur. Búið er að virkja neyðaráætlun og fylgst er með framvindu atburðarins.