Reykjanes Míla á Neyðarstigi vegna yfirvofandi eldgos

29.5.2024

 Míla hefur hækkað viðbúnaðarstig sitt upp á Neyðarstig. Er þetta gert til að fylgja viðbúnaðarstigi Almannavarna og vegna þess að jarðskjálftavirkni er nálægt fjarskiptainnviðum. Fjarskipti eru í hefðbundnum rekstri á svæðinu eins og stendur. Búið er að virkja neyðaráætlun og fylgst er með framvindu atburðarins.