Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

Starfsmenn Mílu starfa í sátt við umhverfi sitt. Miklar framkvæmdir eru á vegum fyrirtækisins um allt land og fylgir þeim stundum nokkurt rask. Við slíkar framkvæmdir verður lögð mikil áhersla á að valda sem minnstu ónæði og ganga vel um landið.
Við uppsetningu fjarskiptamannvirkja er þess vel gætt að þau falli sem best að umhverfinu og að þeim sé komið fyrir í sem mestri sátt við skipulagsyfirvöld, sveitarstjórnir og almenning.
Míla sér um rekstur á 180 bifreiðum og kappkostar fyrirtækið við að rekstur þeirra sé sem hagkvæmastur og umhverfisvænn. Það eru gerðar reglubundnar mengunarmælingar á útblæstri frá bifreiðunum og einnig eru allar bifreiðar fyrirtækisins, sem eingöngu eru í innabæjarakstri á ónegldum vetrardekkjum (harðkornadekkjum).
Innan fyrirtækisins eru dagblöð og gæðapappír sem notaður er, flutt til endurvinnslu. Pappi, timbur og málmar, sem falla til við starfsemina eru flokkaðir og þeim komið til endurvinnslu.
Míla hvetur starfsfólk sitt og viðskiptavini fyrirtækisins til góðra verka í þágu umhverfisverndar og góðrar umgengni við landið.