Míla er lífæð samskipta.

Í Fréttablaðinu í dag, 2. september 2010, er fullyrt að Míla vinni gegn markmiðum ríkisins um samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að meina Vodafone um aðgang að ljósleiðarahringtengingu um landið.
Kastljós Sjónvarpsins hafði samband við okkur hjá Mílu og lýsti áhuga á að fræðast um starf símsmiða í möstrum. Óskað var eftir að fá að fylgjast með starfsmönnum okkar við vinnu í mastri og fræðast um starfið og það sem því fylgir.
Talsverðan gufustrók leggur nú frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli en hann leggur frá gígnum, þar sem stöðuvatn hefur myndast. Mjög stillt veður er á suðurlandi og sést strókurinn því sérlega vel. Hægt er að skoða gosstöðvarnar á vefmyndavélum Mílu á Hvolsvelli og Þórólfsfelli á vefsíðunni eldgos.mila.is
Í hádeginu í dag fór fram blaðamannafundur á vegum HSÍ á Hótel Loftleiðum þar sem verkefni A-landsliðs kvenna í næstu viku voru kynnt. Einnig var skrifað undir samstarfssamning Mílu og HSÍ og mun Míla verða einn af aðalstyrktaraðilum kvennalandsliðs HSÍ, ásamt Póstinum og Lyfju. Það er HSÍ mikið gleðiefni að hefja samstarf við Mílu.
Nú hafa komið um 4 milljónir heimsókna á heimasíðu Mílu til að fylgjast með gosinu frá því Míla setti upp fyrstu myndavélarnar á gossvæðinu. Heimsóknirnar koma frá löndum frá öllum heimsálfum og eru aðeins 4 lönd/landsvæði eftir sem ekki hafa enn nýtt sér myndavélar Mílu, Norður-Kórea, Sómalía, Svalbarði/Jan Mayen og Vestur-Sahara.