Aðstöðuleiga

Míla býður uppá Aðstöðuleigu í rúmlega 400 tækjarýmum víðsvegar um landið.

Hýsing í tækjahúsum

Hýsing í tækjahúsum er þjónusta sem Míla býður viðskiptavinum sínum. Um er að ræða aðgang að tækjahúsum fyrirtækisins sem og aðstöðu fyrir loftnet utan á húsum Mílu. Viðskiptavinum er úthlutað rými í eða utan á tækjahúsi, háð því hvort aðstaða sé fyrir hendi. Míla veitir ráðgjöf um uppsetningu loftneta og annars búnaðar. 

  • Míla veitir ráðgjöf um festingar og getur útvegað þær, sé þess óskað
  • Búnaður leigutaka á að vera í stöðluðum ETSI málum
  • Rafmagn (230 V) afhendist einfasa með 16 A 
  • Leigutaki getur samið við Mílu um aðgang að varaafli (diesel rafmagni) þar sem slíkt er fyrir hendi og tenging möguleg

 

Verð

Í gjaldskrá fyrir leigu í tækjahúsum úti á landsbyggðinni eru 3 verðflokkar eftir staðsetningu húsanna.  Leiga á mánuði fyrir hverja einingu miðar við búnað sem er að grunnfleti 600x600mm (verð án VSK):

Lýsing Verð
I. Tækjahús, staðsett eru við eða mjög nálægt alfaraleið 16.705 kr.
II. Tækjahús, hvorki á fjallatoppum eða við alfaraleið 25.060 kr.
III. Tækjahús, eru á erfiðum stöðum m.t.t. aðkomu, aðgangs að rafmagni o.fl. (t.d. á fjallatoppum) 33.410 kr.

Miðað er við vísitölu byggingarkostnaðar fyrir janúar 2008 eða 377,9.

Verð er án virðisaukaskatts




Stuðningsleiðarkerfi