Míla býður uppá Aðstöðuleigu í rúmlega 400 tækjarýmum víðsvegar um landið.

Hýsing í möstrum er þjónusta sem Míla býður viðskiptavinum sínum. Einnig telst aðstaða í staurum á vegum Mílu til þessa vöruflokks. Viðskiptavinum er úthlutað rými í mastri/tréstaur, háð því hvort laust pláss sé til staðar eða ekki. Míla veitir ráðgjöf um uppsetningu loftneta í möstrum og staurum en einnig eru sérfræðingar í uppsetningu búnaðar meðal starfsmanna Mílu.
Leiguverð á einingu:
Í verðskrá fyrir leigu í möstrum eru 3 verðflokkar eftir tegund masturs og hæð í því. Leiga á mánuði fyrir hverja einingu miðar við loftnet sem er í hefðbundnum stærðum (verð án VSK):
| Lýsing | Verð |
|---|---|
| I. Aðstaða í tréstaur <=12m | kr. 5.300 |
| II. Aðstaða í tréstaur >12m og í mastri <12m | kr. 7.500 |
| III. Aðstaða í mastri 12-33m | kr. 10.100 |
Miðað er við vísitölu byggingarkostnaðar fyrir janúar 2008 eða 377,9.
Verð er án virðisaukaskatts