Aðgangsnet

Nærri öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í landinu eru tengd Aðgangsneti Mílu.

Ljósið heim

Ljósið heim er aðgangur að ljósheimtaug þar sem notandi er með ljósleiðara tengdan inn í hús hjá sér í stað hefðbundinnar koparheimtaugar. Öll ný hverfi verða tengd ljosneti Mílu og ljósheimtaug verður lögð heim að öllum húsum í nýjum hverfum. Lausnin er eingöngu sett á markað fyrir einstaklinga og tekur við af koparheimtauginni sem finna má á flestum heimilum landsins.

  • Ljósið heim er einungis aðgengilegt í nýjum hverfum´
  • Varan er eingöngu ætluð til afnota fyrir einstaklinga
  • Gefur notendum möguleika á aukaþjónustu t.d. háskerpusjónvarpi og öryggisþjónustu
  • Gefur notendum möguleika á meira magni í gagnaflutningi um internet

Um fyrirtækjamarkað gildir almenn leigulínuverðskrá Mílu eftir sem áður.

Verð

Verð fyrir aðgengi að ljóslínu Mílu er 1.251 kr.
Verð er án virðisaukaskatts. Varan hefur verið kynnt og send til upplýsingar til Póst og fjarskiptastofnunnar.




Stuðningsleiðarkerfi