Aðgangsnet

Nærri öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í landinu eru tengd Aðgangsneti Mílu.

Eyk - Ethernet yfir kopar

Ethernet yfir kopar er öruggt háhraða gagnasamband sem nýtist til styttri gagnasendinga. Flutningshraði þjónustunnar getur verið allt að 45 Mb/s. Mögulegur flutningshraði er þó háður fjarlægð frá næstu símstöð og fjölda tiltækra lína.

  • Nýtir núverandi koparlagnir
  • Minnkar þörf á jarðraski vegna ljósleiðaralagningu
  • Oftast hægt að nýta núverandi innanhúslagnir
  • Ekki er þörf á nýjum búnaði hjá endanotanda
  • Fljótlegt að breyta hraða
  • Fljótlegt og auðvelt í uppsetningu samanborið við lagningu ljósleiðara

Þjónustan hefur tryggða bandbreidd, þ.e hún er ekki samnýtt eins og í sumum öðrum kerfum.  Sami hraði er í báðar áttir hvort sem viðskiptavinur er að senda frá sér gögn eða taka á móti þeim.

 

Verð

Stofnverð er 114.738 kr.
Mánaðarverð er misjafnt eftir stærð sambandsins:

LýsingVerð
05 Mb/s 8.938 kr.
10 Mb/s 10.856 kr.
15 Mb/s 10.856 kr.
20 Mb/s 12.774 kr.
25 Mb/s 12.774 kr.
30 Mb/s 14.692 kr.
35 Mb/s 14.692 kr.
40 Mb/s 14.692 kr.
45 Mb/s 14.692 kr.

Verð er án virðisaukaskatts




Stuðningsleiðarkerfi