Aðgangsnet

Nærri öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í landinu eru tengd Aðgangsneti Mílu.

Endurvaki

Endurvaki er vara hjá Mílu sem er ætlað að koma á móts við landsbyggðina, þar sem fjarlægð er mikil á milli símstöðva og endanotenda. Endurvaki er framlenging á ADSL drægni og er mögulegt að nálgast þjónustuna þar sem vegalengd frá næsta ADSL tengipunkti til endanotanda er minnst 7 km og mest 12 km. 

Þjónustan er aðallega hugsuð fyrir landsbyggðina og getur einnig nýst í byggð. Þessa þjónustu má hugsa sem staðgengil ISDN þjónustunnar sem er að renna sitt skeið á enda. ADSL merkið er magnað og jafnað, en ekki búið til nýtt merki.

Verð

ADSL endurvaki - mánaðargjald 1180 kr. Stofnverð 12.699 kr.
Gjaldið leggst ofan á heimtaugagjald og skiptan aðgang.
Míla gjaldfærir viðkomandi fjarskiptafyrirtæki.

Verð er án virðisaukaskatts




Stuðningsleiðarkerfi